Ákvað að gera mína aðra Topp 10 brennslu ársins. Þetta
virkar þannig að númerin á lögunum endurspegla númerið sem að
þau voru á “plötunni” sem að kom út á árinu. (Í fyrra var t.d.
Glósóli með Sigur Rós nr.3 á plötunni Takk.. og fékk því stað
nr.3 á brennslunni ...og mátti ekki fara neitt annað en á stað
nr.3)
Sem sagt....lag nr.1 þarf ekki endilega að vera besta lagið n
then on...
Að sjálfsögðu er þetta allt efni frá árinu 2006 og allt hefur þetta
verið áhrifamikið á einn eða annan hátt. Þetta er reyndar alveg
uppfullt af “hitturum” ...allavega fyrri hlutinn, hvort það sé gott
eða slakt er mér nokkuð sama um..
Gott mál..
-----Top 10 Burn 2006-----
1. The Strokes – You Only Live
Once
[First Impressions of Earth]
Platan kom út mjög snemma á árinu og var fyrsta lagið af henni
gefið út árið 2005. Í tölvunni hlustaði ég oftast á þetta lag af
efni gefið út árið 2006 og fékk bara eiginlega aldrei leið á því. Á
MSN hafði ég í langan tíma setningu úr þessu lagi fyrir neðan
nickið sem að var nú bara svona side-tilraun/svar/þrjóska því að
Gylfi var nefnilega með þetta Camelot silly place dæmi (og er ennþá
með það eftir því sem ég best veit..) ...einhvað að testa sjálfan
sig, veit það ekki.
Runner-up: The Yeah Yeah Yeahs – Gold Lion [Show Your
Bones]
2. Muse – Starlight
[Black Holes and Revelations]
Eiginlega svona fyrsta lagið sem ég tók eftir við fyrstu hlustun á
þessum disk. Maður hafði náttúrulega heyrt af Supermassive Black
Hole úr útvarpinu, en það var fínt að fá þessa viðbót á ipodinn
svona seinni hluta sumarsins í póstinum. Maður var úti að labba með
blöð og bæklinga í Njarðvík og kom það fyrir að maður hlustaði á
lagið tvisvar/þrisvar á degi hverjum.
Runner-up: Arctic Monkeys – I Bet You Look Good On The Dancefloor
[Whatever People Say I am, That’s What I’m Not]
3. The Killers – When You Were
Young
[Sam’s Town]
Varð fyrir svolitlum vonbrigðum með Sam’s Town, en það eru þó
nokkur lög þarna nokkuð fín. Heyrði þetta í fyrsta skiptið uppi á
Thule að mig minnir ...ég og Þórhallur vorum í 1on1 og vorum með
útvarpið í gangi. Ég heillaðist strax, en þó ekki það heillaður að
ég væri einhvað að fara að tapa leiknum. Engar
áhyggjur...
Runner-up: The Strokes – Heart In A Cage [First Impressions of
Earth]
4. Band of Horses – The
Funeral
[Everything All The Time]
Fyrsta sem manni dettur í hug er náttúrulega orðið “Hestaband”.
Band er reyndar mjög leiðinlegt orð yfir hljómsveit ...þannig að
“Hestahljómsveit” gæti kannski passað betur þarna. Anywho...ég var
á leiðinni í skólann þegar að Andri og Búi létu mig vita af þessari
hljómsveit og ég náttúrulega skrópaði í tímanum og fór heim að
download-a. Eðal stöff..
Runner-up: Hot Chip – Over and Over [The Warning]
5. Mammút – Thorkell
[Mammút]
Oh, boy...oh, boy...Lagið gefur svona nokkuð nettan “sumarblæ” með
sér en svo minnir þetta lag mig svona svakalega mikið á þarna
rauðhærðu stelpuna sem var að vinna í Valgeirsbakarí í sumar, eða
öfugt. Söngkonan í Mammút er að ég held rauðhærð og þetta voru
sóðaleg líkindi. Tvískiptar skoðanir á þessu, en mér líkar meget
godt!
Runner-up: Tool – The Pot [10,000 Days]
6. Wolfmother – Joker & The
Thief
[Wolfmother]
Hmm....fyrst tók ég sérstaklega eftir byrjuninni á þessu lagi og
svo fannst mér þetta alltaf betra og betra við hverri hlustun.
Platan þeirra hefur vakið mikla lukku og er búið að gefa út 4 eða 5
smáskífur af henni nú þegar, sem að segir meira en mörg orð.
Söngvarinn hefur verið bendlaður við nokkrar raddir fortímans, en
yfir allt var þessi hljómsveit algjör sumarsmellur.
Runner-up: The Mars Volta – Viscera Eyes [Amputechture]
7. The Mars Volta – Day of The
Baphomets
[Amputechture]
Suddalegur sóði hér á ferð og eitt af því allra besta efni sem ég
hef heyrt. Með þessu lagi færa TMV liðar okkur tæpar tólf mínútur
af endalausri gleði ...takið sérstaklega eftir breytingunni þegar
liðnar eru u.þ.b. 4:40, taktinum sem að rennur í gegnum mest allt
lagið og svo náttúrulega dósasólóinu þegar að líða tekur á
lagið. Gæsahúð, gæsahúð...
Runner-up: Mew – Zookeeper’s Boy [And The Glass Handed
Kites]
8. The Strokes –
Electricityscape
[First Impressions of Earth]
Annað lagið sem að Strokes kemur inná þessa topp 10 brennslu. Lagið
er nokkuð hratt og grípandi og hefur Manchester City blæ yfir sér:
„..You belong to the City!“. Það kom mér á óvart hversu mikið ég
hélt FIOE í miklum hávegum eftir allan þennan tíma. Ég var svo viss
um að önnur hljómsveit mundi valta Strokes, en svo var bara alls
ekki.
Runner-up: The Streets – Never Went To Church [The Hardest Way To
Make An Easy Living]
9. Arctic Monkeys – Mardy Bum
[Whatever People Say I Am, That’s What I’m Not]
Tvímælalaust bréfberalag sumarsins 2006 og fær einnig titilinn
fyrir mest spilaðasta lagið í ipodinum af efni frá árinu
2006.. Einfaldleikinn
öskrar af þessu lagi á meðan að hann syngur sálma um gamla kærustu
eða einhvað þannig. Orð geta ekki sagt margt en samt sem áður
bullandi kandidat í lag ársins...
Runner-up: The Strokes – Killing Lies [First Impressions of
Earth]
10+. Herbert Groemeyer – Celebrate The
Day
[Voices From The FIFA World Cup]
Ákvað að breyta til og í stað þess að hafa bara stað fyrir lög
nr.10 hef ég frekar stað fyrir lög sem eru nr.10 eða yfir. Þetta
lag minnir mig náttúrulega bara á HM í sumar og ég sé fyrir mér
helling af Ítölum hlaupandi í hringi af fögnuði yfir því að hafa
unnið keppnina. Hef sérstaklega sterka sjón af Andrea Pirlo þegar
að Grosso skoraði úr síðasta vítinu... Einkenni allra heimsálfa
koma saman í þessu lagi, svona rétt eins og heimsmeistarakeppnin
er...
Runner-up: Arctic Monkeys – When The Sun Goes Down [Whatever People
Say I Am, That’s What I’m Not]
-----
Ég er með mitt eigið sérhannaða stigakerfi í þessu öllu saman og
lokastaðan leit svona út (tilnefningar í sviga):
1. Arctic Monkeys .................18 (7)
2.
The Strokes ......................18 (6)
3.
Wolfmother .......................10 (4)
4.
Muse .................................8 (3)
5.
The Mars Volta ...................8 (2)
6.
The Killers ..........................7 (2)
7.
Band of Horses ...................6 (2)
...ásamt 11 öðrum hljómsveitum með færri stig
Mest spilaðasta lag í tölvunni frá 2006:
The Strokes – You Only Live Once
Mest spilaðasta lag
í ipod frá 2006: Arctic Monkeys – Mardy
Bum
Plata ársins
2006: Arctic Monkeys – Whatever
People Say I Am, That’s What I’m Not
Lag ársins
2006: The Mars Volta – Day of The
Baphomets
Lag ársins stóð á milli tveggja laga og eftir
mikla hausbarningu náði ég sáttum og TMV hlaut titilinn... The
Strokes og Arctic Monkeys nánast hnífjöfn en AM vinnur þetta á
einni tilnefningu og tekur því plötu ársins...sem að er kannski
alveg réttlætanlegt því að í samantekt af topplistum (skv.
metacritic) frá virtum blöðum/netsíðum/þáttum eru þeir með flestu
fyrstu sætin yfir plötur ársins...af því sem komið er
Til hamingju...